„Þú ert að eyðileggja liðið okkar“

Áhorfendur á Old Trafford í kvöld.
Áhorfendur á Old Trafford í kvöld. AFP

Margir stuðningsmenn Manchester United hafa látið í ljós óánægju sína með frammistöðu liðsins gegn PSV í Meistaradeildinni í kvöld.

Markalaust jafntefli varð niðurstaðan á Old Trafford og líklega þarf United að vinna Wolfsburg á útivelli í lokaumferðinni til að komast áfram.

Einn stuðningsmaður Manchester United skrifaði á twitter síðu sína; “Farðu aftur til Hollands og hættu. Þú er að eyðileggja félagið okkar.“

Og annar skrifaði; „Þetta er en slakasta frammistaða United sem ég hef séð. Van Gaal verður að útskýra hvers vegna hann heldur að hann sé að standa sig vel í starfinu. Hvar er Ancelotti?

Og fleiri stuðningsmenn United létu Van Gaal heyra það; „Við verðum að reka Van Gaal og fá Ancelotti ef hann er á lausu. Þetta á ekkert eftir að verða betra.“

„Jafnvel undir stjórn Moyes vorum við að spila betri fótbolta en núna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert