Leighton Baines hefur náð heilsu

Leighton Baines.
Leighton Baines. AFP

Leighton Baines bakvörðurinn snjalli hjá Everton hefur náð fullri heilsu og þess verður varla langt að bíða að Everton tefli honum fram. 

Þetta kom fram hjá knattspyrnustjóranum Roberto Martinez á blaðamannafundi sem nú stendur yfir í Liverpool. 

Martinez var þó ekki tilbúinn að lýsa því yfir að Baines yrði notaður um helgina. „Leighton Baines er tilbúinn líkamlega. Nú snýst þetta bara um að hann endurheimti sjálfstraustið. Við þurfum að fara mjög varlega og tökum einn dag í einu,“ sagði Martinez.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert