Sturridge meiddist á æfingu

Martin Skrtel og Daniel Sturridge.
Martin Skrtel og Daniel Sturridge. AFP

Daniel Sturridge, sóknarmaður Liverpool, þarf að fara í myndatöku eftir að hafa meiðst á fæti á æfingu liðsins í gær, en til stóð að hann myndi spila gegn Bordeaux í Evrópudeild UEFA á Anfield í kvöld.

Sturridge hefur verið frá keppni síðan hann meiddist á hné 4. október, en hann hefur verið með eindæmum óheppinn með meiðsli undanfarin misseri og misst mikið úr. Hann hefur aðeins spilað þrjá leiki á þessu keppnistímabili og samtals 18 leiki frá áramótum.

Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool staðfesti við fréttamenn fyrir leikinn í kvöld að Sturridge myndi ekki spila og þyrfti að fara í myndatöku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert