Derby fór á toppinn

Leikmenn Derby fagna.
Leikmenn Derby fagna. Ljósmynd/dcfc.co.uk

Derby County tyllti sér á topp ensku B-deildarinnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið hafði betur í toppslagnum gegn Hull á KC Stadium í Hull.

Jacob Butterfield sá um að tryggja Derby sigurinn en hann skoraði bæði mörk liðsins í fyrri hálfleik.

Derby er með 36 stig í efsta sætinu, Hull hefur 35 eins og Brighton sem á leik til góða gegn Birmingham á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert