Hvað gerir Gylfi Þór á Anfield?

Gylfi Sigurdsson að skora fyrir Swansea gegn Aston Villa á …
Gylfi Sigurdsson að skora fyrir Swansea gegn Aston Villa á Villa Park í Birmingham fyrir mánuði. mbl.is/afp

Gylfi Þór Sigurðsson og samherjar hans í Swansea etja kappi við Liverpool á Anfield á morgun í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Illa hefur gengið hjá Gylfa og félögum en þeim hefur aðeins tekist að vinna einn af síðustu níu leikjum sínum og liðið hefur ekki haldið marki sínu hreinu í síðustu sjö leikjum.

Liverpool hefur hins vegar verið í góðum gír undir stjórn Jürgens Klopps og skemmst er að minnast glæsilegs sigurs liðsins á móti Manchester City á útivelli um síðustu helgi, 4:1. Liverpool hefur unnið fjóra af fimm síðustu leikjum sínum á móti Swansea.

Sjá forspjall um leikinn í heild í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert