„Rooney gerir mikið fyrir liðið

Wayne Rooney og Louis van Gaal ræða málin á æfingu …
Wayne Rooney og Louis van Gaal ræða málin á æfingu Manchester United. AFP

Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Wayne Rooney sé ekki í byrjunarliði liðsins vegna stöðu sinnar sem fyrirliði félagsins. Rooney hefur einungis skorað tvö mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur og fengið nokkra gagnrýni fyrir frammistöðu sína.

Hollendingurinn kom fyrirlíða sínum hins vegar til varnar þegar hann var spurður út í stöðu hans í liðinu á blaðamannafundi í gær.

„Að sjálfsögðu er ég ánægður með spilamennsku Rooney, annars væri hann ekki í byrjunarliðinu. Staða hans sem fyrirliði félagsins kemur málinu ekki við. Rooney er að gera mikið fyrir liðið og leggur mikið á sig fyrir liðið,“ sagði Louis van Gaal um frammistöðu Rooney í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert