Jamie Vardy, sóknarmaður Leicester, hefur ákveðið að setja á laggirnar akademíu fyrir leikmenn í utandeildinni á Englandi.
Vardy lék með Fleetwood í utandeildinni árið 2012 eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá Sheffield Wednesday. Vardy er í dag markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar.
Markmiðið með stofnun akademíunnar sem mun bera nafnið V9 akademían er að finna hæfileikaríka leikmenn og reyna að koma í veg fyrir að leikmenn hætti að spila knattspyrnu ef að þeir verða utanveltu í atvinnumannaliðunum.
"Ég veit að það eru leikmenn þarna úti sem eru í svipaðri stöðu og ég var í og þurfa bara að fá tækifæri. Ég vil gefa fólki það tækifæri sem mér var gefið vegna þess að það eru leikmenn í utandeildinni á Englandi sem eru með mikla hæfileika," sagði Vardy um ástæðu þess að hann ætlar að vinda sér í þetta verkefni.
"Það eru alltaf fleiri og fleiri leikmenn sem eru að hætta of snemma, en þegar ég var 16 ára lék ég með Sheffield Wednesday og mér fannst ég of lítill. Ég man hvernig mér leið og það var erfitt að koma til baka úr þeirri stöðu og jafnvel hugsa um þann stað sem ég er á í dag," sagði Vardy enn fremur
"Það eru mörg lið sem vilja ekki taka áhættuna með þessa leikmenn og vilja frekar kaupa leikmann sem er með meiri reynslu fyrir háa upphæð, en það reynist heldur ekki alltaf vel. Ef að lið eru tilbúin að taka áhættuna á leikmönnum í utandeildinni þá mun það gera enska fótboltann sterkari," sagði Vardy um þann ávinning sem gæti orðið af námskeiðinu.