Gerrard mættur aftur til Liverpool (myndir)

Steven Gerrard æfði með Liverpool í dag.
Steven Gerrard æfði með Liverpool í dag. AFP

Fyrrverandi fyrirliði Liverpool, Steven Gerrard, sneri aftur á æfingasvæði félagsins í dag og tók fullan þátt í æfingu. Gerrard, sem leikur með LA Galaxy í MLS-deildinni, æfir með uppeldisfélaginu sínu á meðan frí er vestanhafs.

Gerrard og Jür­gen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, voru brosandi út að eyrum þegar ljósmyndarar smelltu af þeim myndum í rigningunni í Liverpool í dag. Áður hafði hann fylgst með fyrrum félögum sínum sigra Swansea í gær, 1:0. 

Orðrómur fór af stað þess efnis að Gerrard myndi leika með Liverpool á meðan hann væri í vetrarfríi. Klopp var þó fljótur að eyða þeim orð sögusögnum og segir að Gerrard sé velkomið að æfa með liðinu en hann muni ekki leika með því.

Myndir af Gerrard á æfingu Liverpool má sjá hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert