„Versta United lið sem ég hef séð“

Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United.
Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United. AFP

Ekkert lát er á gagnrýni á lið Manchester United en þeir eru margir sem hafa gagnrýnt leikstíl liðsins undir stjórn Louis van Gaal.

„Þetta er versta Manchester United lið sem ég hef séð á mínum ferli í fótboltanum,“ segir Harry Redknapp fyrrum knattspyrnustjóri Tottenham, West Ham, QPR og fleiri liða í dálki sínum sem hann skrifar í enska blaðinu Evening Standard.

„Ég veit að sumir leikmenn liðsins eru ungir og meiðsli hafa verið að angra liðið en þetta er ennþá Manchester United. Nokkrir af leikmönnum liðsins ættu ekki að vera nálægt því að vera í aðalliði félagsins,“ segir reynsluboltinn Redknapp.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert