Kompany slapp ómeiddur úr flugslysi

Vincent Kompany og Yaya Toure samherji hans hjá Manchester City.
Vincent Kompany og Yaya Toure samherji hans hjá Manchester City. AFP

Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, slapp ómeiddur eftir að einkaflugvél sem Belginn var farþegi í rann út af flugbraut sinni á alþjóðaflugvellinum í Norwich í gær. 

Belgíski landsliðsmaðurinn var fjarri góðu gamni vegna meiðsla á kálfa í 3:0 sigri Manchester City gegn Norwich í enska bikarnum í gær.

Kompany var meðal áhorfenda á leiknum og átti að fljúga heim í einkaþotu eftir leikinn. Þegar flugvélin reyndi að taka á loft rann hún út af flugbrautinni og stöðvaði á grasi við hliðina á flugbrautinni. Engin meiðsli urðu á fólki í óhappinu.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert