Verstu mistök tímabilsins? (myndskeið)

Wayne Hennessey missir boltann í kvöld.
Wayne Hennessey missir boltann í kvöld. AFP

Botnlið Aston Villa vann sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni frá því í fyrstu umferð þann 8. ágúst þegar liðið fékk Crystal Palace í heimsókn í kvöld.

Sigurmark leiksins var hins vegar klaufalegt í meira lagi. Eftir hornspyrnu kom varnarmaðurinn Jolean Lescott boltanum á markið, að því er virtist beint á Wayne Hennessey í marki Palace. Sá síðarnefndi gerði hins vegar skelfileg mistök eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði, og það réði úrslitum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert