Kemst Manchester City á toppinn?

Jamie Vardy, Danny Simpson og félagar þeirra hjá Leicester City …
Jamie Vardy, Danny Simpson og félagar þeirra hjá Leicester City fá Manchester City í fyrsta leik dagsins í enska boltanum. AFP

Átta leikir fara fram í 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla í dag. Stórleikur dagsins er leikur tveggja efstu liðanna í deildinni, en Manchester City getur hirt toppsætið af Leicester City þegar liðin mætast á Etihad Stadium, heimavelli Manchester City.

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans hjá Swansea fá Crystal Palace í heimsókn, en Swansea er taplaust í síðustu þremur leikjum liðsins. 

Leikir dagsins eru eftirfarandi:

Manchester City - Leicester City 12:45
Swansea City - Crystal Palace 15:00
Liverpool - Sunderland 15:00
Tottenham Hotspur - Watford 15:00
Aston Villa - Norwich City 15:00
Stoke City - Everton 15:00
Newcastle - WBA 15:00
Southampton - West Ham 17:30

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert