Klopp verður ekki á hliðarlínunni

Jürgen Klopp mun ekki stýra Liverpool í dag samkvæmt heimildum …
Jürgen Klopp mun ekki stýra Liverpool í dag samkvæmt heimildum enskra fjölmiðla. AFP

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, mun ekki stýra liði sínu af hliðarlínunni þegar Liverpool mætir Sunderland í 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla á Anfield, heimavelli Liverpool, klukkan 15:00 í dag. 

Þetta kemur fram á twitter síðum Skysports og BBC. Enskir fjölmiðlar greina frá því að Klopp hafi fengið botnlangabólgu í nótt og sé fjarri góðu gamni vegna þess. Þessi grunur hefur þó ekki verið staðfestur af Liverpool. 

Zeljko Buvac, Peter Krawietz, Pep Ljinders og John Achterberg aðstoðarmenn Klopp munu, af þeim sökum stýra Liverpool í dag ef þessar fregnir eru á rökum reistar.

Liverpool er í áttunda sæti deildarinnar með 34 stig fyrir leik dagsins á meðan Sunderland er í 19. sæti deildarinnar með 19 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert