Tölfræðin verður ekki mikið verri

Simon Mignolet skrifaði nýlega undir fimm ára samning við Liverpool.
Simon Mignolet skrifaði nýlega undir fimm ára samning við Liverpool. Heimasíða Liverpool

Simon Mignolet, markvörður Liverpool, skrifaði fyrir stuttu undir fimm ára samning við Liverpool en margir stuðningsmenn Liverpool skilja lítið í því þessa dagana. Sér í lagi ef tölfræði kappans er skoðuð en hún er vægast sagt slök.

Af síðustu 19 skotum sem Mignolet hefur fengið á sig í ensku úrvalsdeildinni hafa 12 skot farið inn. Það þýðir að 63% af síðustu 19 skotum mótherjanna sem rata á markið fara í netið hjá Belganum.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert