Leikur West Ham og Liverpool í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar stendur yfir, en staðan er 1:1, en brasilíski landsliðsmaðurinn Philippe Coutinho jafnaði metin með lúmsku marki.
Coutinho lék á varnarvegg West Ham sem bjóst líklega við því að hann myndi snúa boltann yfir vegginn og stökk upp. Coutinho skaut í staðinn skoti meðfram jörðinni sem fór undir varnarvegg West Ham og boltinn hafnaði í netinu.
Mark Coutinho má sjá í myndskeiðinu hér að neðan.