9 ára skoraði mark mánaðarins (myndskeið)

Liðsmenn Everton fagna marki.
Liðsmenn Everton fagna marki. AFP

Hinn 9 ára gamli George Shaw skoraði mark mánaðarins að mati stuðningsmanna enska úrvalsdeildarliðsins Everton.

Mark Shaw hlaut 86,07% atkvæðanna en þar á eftir kom mark Ross Barkley á móti Manchester City sem hlaut 6,18%.

Pilturinn ungi glímir við heilalömun og var honum boðið á Goodison Park, heimavöll Everton þar sem hann skoraði við mikinn fögnuð áhorfenda eins og sjá má í myndskeiðinu.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert