Mancini vill fá tvo frá City

Roberto Mancini.
Roberto Mancini. AFP

Roberto Mancini þjálfari ítalska A-deildarliðsins Inter vill fá tvo leikmenn Manchester City til liðs við sig fyrir næstu leiktíð.

Leikmennirnir sem um ræðir eru Yaya Touré og Pablo Zabaleta en báðir spiluðu þeir undir stjórn Ítalans þegar hann stýrði Manchester-liðinu frá 2009 til 2013.

Touré, sem er 32 ára gamall, er ekki sagður eiga framtíð hjá Manchester City þegar Pep Guardiola tekur við liðinu í sumar og Zabaleta, sem er 31 árs gamall, þykir líklegur til að yfirgefa City-liðið.

 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert