Fer Terry til United í sumar?

Verða John Terry og Wayne Rooney samherjar hjá Manchester United …
Verða John Terry og Wayne Rooney samherjar hjá Manchester United á næstu leiktíð? AFP

John Terry, fyrirliði Chelsea á Englandi, gæti farið til Manchester United í sumar en Ray Wilkins, fyrrum aðstoðarþjálfari ensku meistaranna, heldur þessu fram.

Bæði Terry og Chelsea hafa staðfest að leikmaðurinn yfirgefi félagið í sumar en ekki er ljóst hvar hann mun spila á næstu leiktíð.

Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, verður að öllum líkindum ekki með liðið áfram á næstu leiktíð en Jose Mourinho, fyrrum stjóri Chelsea, er talinn líklegastur til þess að taka við.

Enskir fjölmiðlar fullyrða það að Mourinho taki við United í sumar en hann mun þá líklega reyna að klófesta Terry.

„Þetta yrði svolítil ósvífni ef Mourinho myndi reyna að plata Terry til að koma með sér en það kæmi mér alls ekki á óvart ef hann myndi reyna. Hvort Terry hafi áhuga á því að leika fyrir annað lið í ensku úrvalsdeildinni er svo annað mál,“ sagði Wilkins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert