Stuðningsmenn Stoke vilja fá Puyol

Carles Puyol.
Carles Puyol. AFP

Stuðningsmenn enska úrvalsdeildarfélagsins Stoke City vilja fá Carles Puyol, fyrrum varnarmann Barcelona, til félagsins.

Puyol var mættur til Stoke í dag til þess að ganga frá samningnum við félagið fyrir hönd Bojan Krkic, framherja liðsins.

Puyol er umboðsmaður leikmannsins en hann er einnig með leikmenn á borð við Marc Bartra og Aymeric Laporte.

Hann birtist á mynd ásamt Bojan á vefsvæði Stoke í dag og kölluðu stuðningsmenn félagsins eftir því að fá hann á neyðarláni út tímabilið. Hann er auðvitað búinn að leggja skóna á hilluna, en það er þó aldrei að vita.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert