Lingard í basli með pönnukökurnar

Jesse Lingard, leikmaður Manchester United.
Jesse Lingard, leikmaður Manchester United. AFP

Jesse Lingard, leikmaður Manchester United á Englandi, hefur verið öflugur með liðinu upp á síðkastið, en hann var þó nálægt því að meiða sig í miðjum pönnukökubakstri á dögunum.

Lingard, sem er 23 ára gamall, hefur verið í lykilhlutverki í liði Louis van Gaal á þessari leiktíð, en þrátt fyrir slaka byrjun hefur honum að tekist að festa byrjunarliðssæti í liðinu.

Hann þarf þó aðeins að gæta sín utan vallar því ekki munaði miklu að illa færi er hann var að baka pönnukökur heima hjá sér á dögunum. Hann sýndi listir sínar með pönnukökurnar áður en hann var nálægt því að hrynja í gólfið.

Hægt er að sjá myndskeið af því hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert