Misnotaði stöðu sína

Adam Johnson er án félags og gæti auk þess átt …
Adam Johnson er án félags og gæti auk þess átt yfir höfði sér fangelsisdóm. AFP

Enski knattspyrnumaðurinn Adam Johnson var í gær rekinn frá enska úrvalsdeildarfélaginu Sunderland auk þess sem íþróttaframleiðandinn Adidas rifti samningi sínum við hann, en hann hefur játað tvö kynferðisbrot gegn stúlku sem var undir lögaldri.

Johnson, sem er 28 ára gamall, var búinn að vera í lykilhlutverki í liði Sunderland síðustu fjögur árin, en hann var handtekinn í mars á síðasta ári grunaður um að hafa haft samræði með 15 ára stúlku.

Réttarhöldin hófust í dag en hann hefur þegar játað tvo ákæruliði í málinu. Hann hefur játað að hafa gefið henni hluti til þess að öðlast traust auk þess sem hann viðurkenndi að hafa kysst hana en neitar tveimur öðrum þar sem hann á að hafa haft samræði með stúlkunni.

Stúlkan er stuðningsmaður Sunderland og var þá mikill aðdáandi Adams. Hún bætti honum við vinalistann á Facebook fyrir áramót og eftir það fóru þau að spjalla. Kate Blackwell, saksóknari í málinu, telur að Adam hafi misnotað stöðu sína í samfélaginu.

„Hún beið eftir honum eftir leiki bara til þess að sjá hann. Hún var alltaf í Sunderland-treyjunni sinni sem var merkt honum og vildi fá mynd. Hún var ótrúlega skotin í honum og var hann í raun hetja í hennar augum,“ sagði Blackwell.

Þegar Adam var handtekinn af lögreglunni í mars þá var sími hans gerður upptækur. Þar kom í ljós að hann hafði athugað hvort stúlkan mætti löglega stunda kynlíf með honum. Hann vissi því að það sem hann gerði var siðferðislega rangt en hér fyrir neðan má sjá brot af skilaboðunum þeirra.

Adam: „Ég hélt að ég myndi fá koss fyrir treyjuna sem ég gaf þér“

Stúlkan: „Þú spurðir ekki“

Adam: „Ég kem þá og fæ einn hjá þér“

Stúlkan: „Í alvöru?“

Adam: „Ef þú vilt“

Spjallið á milli þeirra varð síðan grófara. Adam fór að biðja hana um nektarmyndir en hann hvatti hana einnig til þess að stunda kynlíf með honum í Range Rover bifreið hans. Hann opnaði sérstakan Snapchat aðgang bara til þess að spjalla við hana.

Adam: „Er einhver séns á að maður fái eina dónalega mynd af þér?“

Stúlkan: „Kannski“

Adam: „Ég bíð þolinmóður eftir henni“

Adam Johnson vildi fá dónalegar myndir af henni á Snapchat.
Adam Johnson vildi fá dónalegar myndir af henni á Snapchat. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert