Eiga að dekra við konurnar

Van Gaal er rómantískur.
Van Gaal er rómantískur. AFP

Leikmenn Manchester United fá frí frá æfingum í dag, þrátt fyrir 2:1-tap gegn Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Louis van Gaal, knattspyrnustjóri félagsins, gefur frí í tilefni af Valentínusardeginum.

„Ég hef gefið þeim frídag til að þeir geti dekrað við konurnar sínar. Ég dekra við konuna mína á hverjum degi, ekki bara á Valentínusardag,“ sagði van Gaal glottandi við blaðamenn.

Hann sagðist ætla að gera eitthvað sérstakt í dag með konunni sinni en ákvað að halda plönunum leyndum. „Við ætlum að gera eitthvað sérstakt í tilefni dagsins en ég segi ekki hvað það verður. Það er leyndarmál,“ sagði brosmildur knattspyrnustjóri Manchester United.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert