Vil ekki fara aftur til Liverpool

Leikmenn Liverpool fagna marki.
Leikmenn Liverpool fagna marki. AFP

Ítalski sóknarmaðurinn Mario Balotelli segist ekki vilja snúa aftur til Liverpool í sumar og vilji hans er að vera áfram í herbúðum AC Milan á næstu leiktíð.

Balotelli er samningsbundinn Liverpool en leikur sem lánsmaður hjá AC Milan þar sem hann hefur skorað 3 mörk í 19 leikjum með liðinu í deildinni. Liverpool keypti ítalska skrautfuglinn fyrir 16 milljónir punda í ágúst 2014 og eina tímabilið sem hann lék með liðinu skoraði hann aðeins 4 mörk í 28 leikjum.

„Ég vil vera áfram hjá AC Milan því ég var ekki ánægður hjá Liverpool og vil ekki fara aftur þangað. Ég hef verið að gera það gott í síðustu leikjum og ég hef enn sex leiki til að sanna mig. Ég er góðu andlegu formi og er rólegur og yfirvegaður,“ segir Balotelli í samtali við ítalska fjölmiðla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert