Starfið hjá United er þitt

Liðsmenn Manchester United fagna marki.
Liðsmenn Manchester United fagna marki. AFP

José Mourinho hefur fengið þau skilaboð frá stjórnendum Manchester United að hann verði næsti knattspyrnustjóri félagsins.

Vefútgáfa enska blaðsins The Sun greinir frá þessu í kvöld en þar kemur fram að Mourinho hafi átt viðræður við forráðamenn Manchester United undanfarna tvo daga.

Mourinho er sagður muni gera þriggja ára samning sem mun gera hann að hæst launaða knattspyrnustjóra í sögu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert