„Var ekki gáfulegt“

Jürgen Klopp.
Jürgen Klopp. AFP

„Ég er auðvitað ekki ánægður með markið sem við fengum á okkur undir lok leiksins. Að fá okkur skyndisókn í uppbótartíma er ekki mjög gáfulegt en þetta var bara fyrri leikurinn,“ sagði Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool eftir tap sinna manna gegn Villarreal í kvöld.

„Staðan er 1:0 en Villarreal á eftir að koma á Anfield þar sem við erum öflugir. Við áttum okkar stundir í leiknum og vörðumst vel og það er alveg ljóst í mínum huga að þessi barátta er ekki töpuð. Leikurinn á Anfield verður öðruvísi,“ sagði Klopp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert