United ætlar að ná í Leicester manninn

Leikmenn United fagna markinu gegn Leicester á Old Trafford í …
Leikmenn United fagna markinu gegn Leicester á Old Trafford í dag. AFP

Manchester United hefur augastað á einum leikmanni Leicester City og ætlar að gera allt sem það getur til að fá hann til liðs við sig í sumar.

Leikmaðurinn sem um ræðir er franski miðjumaðurinn N'Golo Kante sem hefur leikið frábærlega með liði Leicester á tímabilinu. United er sagt reiðubúið að greiða 30 milljónir punda fyrir leikmanninn en sú upphæð jafngildir 5,4 milljörðum króna.

Kante, sem átti einn stórleikinn með Leicester í 1:1 jafntefli gegn Manchester United á Old Trafford í dag, er 25 ára og hefur átt frábært tímabil með Leicester sem er við það að landa Englandsbikarnum.

Sjálfur Sir Alex Ferguson fyrrverandi knattspyrnustjóri United hefur látið hafa eftir sér að Kante hafi verið besti leikmaðurinn í deildinni í ár en miðjumaðurinn sterki er samningsbundin Leicester til ársins 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert