Ótrúleg samlíking feðganna

Kasper Schmeichel er afar líkur föður sínum og er nú …
Kasper Schmeichel er afar líkur föður sínum og er nú enskur meistari á nákvæmlega sama hátt og hann. AFP

Kasper Schmeichel, markvörður Leicester City og danska landsliðsins, varð enskur meistari í gær, á sama degi og faðir hans fyrir 23 árum síðan - og nákvæmlega jafngamall honum.

Peter Schmeichel, markvörður Manchester United og danska landsliðsins á sínum tíma, vakti athygli á þessu á Twitter.

Fyrst skrifaði hann: 2. maí 1993 er ég 29 ára gamall, við spiluðum ekki en urðum enskir meistarar því keppinautar okkar unnu ekki.

Svo skrifaði hann: 2. maí 2016 er Kasper Schmeichel 29 ára gamall, Leicester spilaði ekki en varð líka enskur meistari því Tottenham vann ekki!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert