Valinn sá besti þriðja árið í röð

David de Gea.
David de Gea. AFP

Spænski markvörðurinn David De Gea var í gær útnefndur leikmaður ársins af leikmönnum Manchester United.

Þetta er þriðja árið í röð sem De Gea er valinn leikmaður ársins og hann er fyrsti leikmaður félagsins sem nær þeim áfanga.

Spánverjinn hefur leikið sérlega vel á milli stanganna hjá United á tímabilinu en hann er sá markvörður sem oftast hefur haldið marki sínu hreinu í deildinni á tímabilinu eða 14 sinnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert