„Hissa ef þeir fara ekki í sumar“

Leikmenn Leicester fagna marki.
Leikmenn Leicester fagna marki. AFP

Riyad Mahrez og N'Golo Kante, tveir af lykilmönnum Englandsmeistara Leicester City munu yfirgefa liðið í sumar.

Þetta er mat Paul Mersons, fyrrverandi leikmanns og Arsenal og nú sparkspekings á Sky Sports.

„Ég er hræddur um að Mahrez og N'Golo Kante fari. Ég sé hins vegar ekkert vandamál fyrir Leicester varðandi Jamie Vardy því ég held að ekkert lið vilja borga háa upphæð fyrir hann þar sem hann er orðinn 29 ára gamall. Ég yrði hins vegar mjög ef hinir tveir yrðu áfram í herbúðum liðsins á næsta tímabili,“ segir Merson.

Knattspyrnustjórinn Claudio Ranieri sagði við fréttamenn í gær að hann vilji halda öllum leikmönnum liðsins en þeir sem eru ósáttir verður ekki haldið hjá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert