Newcastle losar sig við leikmenn

Gabriel Obertan er farinn frá Newcastle.
Gabriel Obertan er farinn frá Newcastle. AFP

Enska knattspyrnufélagið Newcastle, sem er í harðri baráttu um áframhaldandi sæti í úrvalsdeildinni, hefur losað sig við tvo leikmenn þó tímabilinu sé ekki lokið.

Frakkarnir Gabriel Obertan og Sylvain Marveaux hafa verið leystir undan samningum við félagið. Obertan hefur aðeins leikið fimm leiki í úrvalsdeildinni í vetur og Marveaux ekki komið við sögu í einum einasta.

Obertan er 27 ára og hefur verið í röðum Newcastle frá 2011 en hann kom þá frá Manchester United. 

Marveaux er þrítugur og hefur líka verið hjá Newcastle frá 2011 en var síðasta vetur, 2014-15, í láni hjá franska liðinu Guingamp.

Newcastle á eftir að mæta Aston Villa og Tottenham í tveimur síðustu umferðum úrvalsdeildarinnar. Liðið er með 33 stig, Sunderland 32 og Norwich 31 en tvö þessara liða falla ásamt Aston Villa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert