Mourinho þögull sem gröfin

Mourinho vill ekkert segja við fréttamenn.
Mourinho vill ekkert segja við fréttamenn. AFP

Portúgalski knattspyrnustjórinn José Mourinho tjáði sig lítið við fréttamenn sem hafa safnast saman fyrir utan heimili hans í London í dag.

Eins og kom fram fyrr í dag sagði Manchester United hollenska knattspyrnustjóranum Lou­is van Gaal upp störf­um. Fastlega er búist við því að Mourinho taki við sem knattspyrnustjóri United.

„Ég get sagt þér þetta. Ég fer ekki aftur út úr húsi í dag, þannig að þið getið öll farið heim,“ sagði Mourinho við fréttamann Sky Sports nú síðdegis.

Samkvæmt heimildum Sky Sports mun United ræða við fulltrúa portúgalska knattspyrnustjórans á morgun.

Fyrri frétt mbl.is: Van Gaal rekinn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert