Van Gaal fær væna summu í vasann

Van Gaal tekur í höndina á Williams prins fyrir bikarúrslitaleikinn …
Van Gaal tekur í höndina á Williams prins fyrir bikarúrslitaleikinn á móti Crystal Palace. AFP

Louis Van Gaal fer ekki tómhentur frá Manchester United en þar sem hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið þarf það að gera við hann starfslokasamning.

Starfslokasamningurinn hljóðar upp á 4,5 milljónir punda sem jafngildir 813 milljónum króna og þá fær hann 400 þúsund pund í bónus fyrir að gera liðið að bikarmeisturum en sú upphæð jafngildir 72 milljónum króna.

Van Gaal fær því tæplega 900 milljónir króna í vasann en þess má geta að Manchester United fær 4 milljónir punda í bónus frá þýska íþróttavörufyrirtækinu Adidas fyrir að verða bikarmeistari en United leikur í búningum frá Adidas.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert