Beckham leggur orð í belg

David Beckham.
David Beckham. AFP

Það er gríðarleg eftirvænting í enskum fjölmiðlum vegna væntanlegrar ráðningar Josés Mourinhos í stöðu þjálfara Manchester United, en búist er við að Portúgalinn litríki skrifi undir innan tveggja sólarhringa.

Enski miðillinn Evening Standard hafði samband við stórstjörnuna David Beckham, sem lék fyrir Manchester United í 11 ár, og spurði hann hvernig honum litist á blikuna.

„Ég elska José, mér finnst hann vera frábær stjóri, góð manneskja og ástríðufullur gagnvart íþróttinni,“ sagði Beckham. „Almenningur elskar hann. Stuðningsmennirnir elska að sjá hann á hliðarlínunni, þeir dýrka persónuleika hans.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert