Ekkert samkomulag um Zlatan

Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. Dave Winter

Samkvæmt heimildum Sky Sports er ekkert samkomulag um að Svíinn Zlatan Ibrahimovic muni ganga til liðs við Manchester United í sumar.

Ibrahimovic, sem er 34 ára gamall, hefur ítrekað verið orðaður við Manchester United í sumar en hann hefur gefið skýrt fram að hann muni yfirgefa Paris Saint-Germain í sumar eftir 122 leiki, 113 mörk og fjóra Frakklandsmeistaratitla á fjórum tímabilum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert