Tekur Stam við Reading?

Jaap Stam.
Jaap Stam. AFP

Samkvæmt heimildum Sky Sports er Hollendingurinn Jaap Stam líklegur til þess að taka við af Brian McDermott sem þjálfari enska knattspyrnufélagsins Reading. 

Brian McDermott var rekinn í morgun eftir fimm mánaða starf, en hann hafði áður gegnt starfinu frá 2009-2013. Tímabilið 2009-2010 lék Gylfi Þór Sigurðsson undir stjórn hans hjá Reading.

Jaap Stam gerði garðinn frægan sem varnarmaður hjá Manchester United um aldamótin. Reading væri frumraun hans sem knattspyrnustjóri en hann fékk þjálfaraskírtenið sitt nýlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert