Ánægjulegt að sjá Mourinho í stjórastarfi

Verður Mourinho lengi knattspyrnustjóri hjá Manchester United?
Verður Mourinho lengi knattspyrnustjóri hjá Manchester United? AFP

Fyrrverandi varnarmaður Chelsea, Marcel Desailly, hitti José Mourinho, nýráðinn knattspyrnustjóra Manchester United á dögunum. Desailly telur að Mourinho hafi hvílst vel og sé reynslunni ríkari síðan hann var rekinn frá Chelsea í desember.

„Ég hitti Mourinho í Mexíkó og við höfðum tíma til að spjalla saman. Hann hefur haft tíma til að hugsa og sjá hvað er að gerast í fótboltanum,“ sagði Desailly.

„Ég er ánægður að hann er byrjaður að þjálfa aftur. Það er gott að hann er kominn aftur á lappirnar eftir að hann féll niður,“ bætti Desailly við.

Varnarmaðurinn fyrrverandi telur að Mourinho verði lengi hjá United. „Það lítur allt út fyrir það. Ef þú vilt vera lengi hjá liði þá verðurðu einnig að tileinka þér þá heimspeki og leikstíl sem ríkir þar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert