Fer Vermaelen frá Barcelona til Liverpool?

Vermaelen (3) í baráttunni í vináttulandsleik með Belgum á dögunum.
Vermaelen (3) í baráttunni í vináttulandsleik með Belgum á dögunum. AFP

Ensku úrvalsdeildarfélögin Liverpool og West Ham eru sögð áhugasöm um að krækja í belgíska varnarmanninn Thomas Vermaelen.

Belgíski varnarmaðurinn er ekki ókunnur ensku úrvalsdeildinni en hann lék með Arsenal í fimm ár áður en hann gekk til liðs við Barcelona árið 2014. Vermaelen hefur ekki leikið nema 11 leiki fyrir spænsku meistaranna en hann hefur glímt við meiðsli.

Enskir og spænskir fjölmiðlar greina frá því að Liverpool og West Ham hafi áhuga á Vermaelen og Barcelona sé tilbúið að leyfa honum að fara. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert