Wenger bauð Xhaka paradís

Granit Xhaka.
Granit Xhaka.

Granit Xhaka segir að Arséne Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hafi boðið honum fótboltaparadís skyldi hann ganga til liðs við Arsenal.

„Ég mun aldrei gleyma því fyrsta sem hann sagði við mig. Hann sagði: „Ef þú vilt njóta fótboltans, þá verðurðu að ganga til liðs við okkur. Hér er paradís.“ Það var brjálað. Hann er goðsögn fyrir mér,“ sagði Xhaka í viðtali við Sports Bild. 

Xhaka gekk til liðs við Arsenal frá Borussia Mönchengladbach í sumar. Hann er svissneskur landsliðsmaður og verður í eldlínunni á EM í Frakklandi sem er á næsta leyti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert