Carrick áfram á Old Trafford

Michael Carrick.
Michael Carrick. AFP

Michael Carrick hefur gert eins árs samning við Manchester United. Hann gekk til liðs við Manchester United frá Tottenham árið 2006.

Samningur Carricks átti að renna út í lok mánaðar og hafði ástralska A-deildarliðið Perth Glory reynt að fá hann í sínar raðir en José Mourinho, nýr þjálfari Manchester United, telur að Carrick geti enn gegnt hlutverki á Old Trafford.

„Michael hefur mikla reynslu eftir mörg ár hjá félaginu og þekking hans verður dýrmæt fyrir mig. Ég hlakka til að vinna með honum,“ sagði Mourinho.

„Ég er mjög ánægður með að þetta ævintýralega ferðalag haldi áfram. Það er frábært að fá þann möguleika að vinna fyrir Mourinho,“ hafði Carrick um málið að segja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert