Mourinho byrjaður að taka til

José Mourinho með Manchester United-treyjuna.
José Mourinho með Manchester United-treyjuna. Ljósmynd/Manutd.com

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur tjáð forráðamönnum liðsins að undirbúa sölu á ítalska bakverðinum Matteo Darmian.

Ítalskir fjölmiðar greina frá þessu í dag en Mourinho vinnur þessa dagana að smíða saman leikmannahóp Manchester-liðsins fyrir næstu leiktíð.

Darmian gekk í raðir Manchester United í fyrra og kom við sögu í 39 leikjum liðsins á síðasta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert