Liverpool býður í Zielinski

Piotr Zielinski, leikmaður Udinese.
Piotr Zielinski, leikmaður Udinese. AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur lagt fram 9,5 milljóna punda tilboð í pólska miðjumanninn Piotr Zielinski en það er Guardian sem greinir frá.

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur lengi fylgst með Zielinski en enska félagið var orðað við hann fyrst fyrir nokkrum vikum.

Guardian segir frá því að Liverpool hafi lagt fram tilboð í kappann en það er talið vera í kringum 9,5 milljónir punda. Udinese vill þó fá 12 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Zielinski hefur verið lofað lykilhlutverki í Liverpool ef hann ákveður að ganga til liðs við félagið en Klopp er staðráðinn í að fá hann til Englands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert