Martin Skrtel er að ganga til liðs við tyrkneska félagið Fenerbahce fyrir 5,5 milljónir punda samkvæmt heimildum Sky Sports.
Sktrel, sem er 31 árs gamall, mun binda enda á átta ára dvöl í Liverpool en miðvörðurinn féll niður í goggunarröðinni eftir að Jürgen Klopp tók við sem knattspyrnustjóri liðsins. Skrtel er landsliðsfyrirliði Slóvakíu sem keppir á Evrópumóti landsliða í Frakklandi um þessar mundir.