Wenger býst ekki við Vardy

Verður Vardy áfram hjá Leicester?
Verður Vardy áfram hjá Leicester? AFP

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur litla trú á því að sóknarmaðurinn Jamie Vardy yfirgefi Englandsmeistara Leicester og gangi til liðs við Arsenal.

Leicester varð að samþykkja 20 millj­ón punda til­boð Arsenal í Var­dy en Arsenal lagði tilboðið fram í byrjun mánaðarins. Leicester bauð hon­um nýj­an samn­ing í von um að hann yrði um kyrrt hjá Eng­lands­meist­ur­un­um. Var­dy þarf því að ákveða hvort hann samþykki samn­ingstil­boð Arsenal eða Leicester City og vill leikmaður­inn bíða þar til EM í Frakklandi er liðið.

„Jamie Vardy er í augnablikinu leikmaður Leicester og eftir því sem ég best veit þá verður hann áfram hjá Leicester,“ sagði Wenger við japanska fjölmiðla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert