Manchester United er draumaliðið

Fer Mkhitaryan til Manchester United í sumar?
Fer Mkhitaryan til Manchester United í sumar? AFP

Samkvæmt umboðsmanni Henrikh Mkhitaryan vill miðjumaðurinn ganga til liðs við Manchester United í sumar en United er „draumalið“ leikmannsins.

Mkhitaryan, sem er 27 ára gamall, hefur verið orðaður við brottför frá þýska liðinu Dortmund en talið er að United hafi áhuga á armenska miðjumanninum.

Mino Raiola, umboðsmaður Mkhitaryan, heldur því fram að United hafi boðið 24 milljónir evra í leikmanninn. „Tilboð eins og þetta frá United kemur ef til vill bara einu sinni á ævi leikmanns. Enginn getur fullvisað okkur um að dyrnar verði enn opnar fyrir Mkhitaryan á næsta ári,“ sagði Raiola.

„Manchester United er draumalið Mkhitaryan og hann vill ólmur fara þangað.“

Dortmund hefur engan áhuga á því að selja leikmanninn og samkvæmt þýskum miðlum ætlar liðið ekki að láta hann af hendi í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert