Chelsea losar sig við þrjá

Radamel Falcao í hornabolta. Hann hefur lítið fengið að spila …
Radamel Falcao í hornabolta. Hann hefur lítið fengið að spila fótbolta með Chelsea. AFP

Þrír leikmenn hafa yfirgefið enska knattspyrnufélagið Chelsea án þess að ná að setja mark sitt á leik þess en tilkynnt var í morgun að samningar þeirra yrðu ekki endurnýjaðir. Þetta eru þeir Radamel Falcao, Alexander Pato og Marco Amelia.

Falcao, sem er þrítugur Kólumbíumaður, hefur verið í láni frá Mónakó en náði aðeins að spila tíu leiki í úrvalsdeildinni síðasta vetur.

Pato, sem er 26 ára Brasilíumaður, var í láni frá Corinthians en kom aðeins við sögu í tveimur leikjum í úrvalsdeildinni og skoraði eitt mark.

Amelia er 34 ára ítalskur markvörður sem kom frá C-deildarliði í heimalandi sínu fyrir síðasta tímabil en lék engan mótsleik með Chelsea. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert