Zlatan búinn að skrifa undir

Zlatan Ibrahimovic er kominn til Manchester United.
Zlatan Ibrahimovic er kominn til Manchester United. AFP

Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic skrifaði í dag undir eins árs samning við enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United. Þetta staðfestir félagið á heimasíðu sinni í dag.

Zlatan, sem er 34 ára gamall, er eins og flestum er kunnugt einn sigursælasti knattspyrnumaður heimsins, en hann hefur leikið fyrir félög á borð við Ajax, Inter, Milan, Juventus, Barcelona og nú síðast Paris Saint-Germain.

Samningur hans hjá PSG rann út um mánaðarmótin en hann hefur síðustu vikur verið í viðræðum við Manchester United. Louis van Gaal var látinn taka poka sinn eftir tímabilið og tók Jose Mourinho við starfinu en Mourinho og Zlatan unnu saman hjá Inter.

Zlatan kom til Manchester í dag og skrifaði í kjölfarið undir eins árs samning með möguleika á öðru ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert