Framherji AC Milan gefur svar eftir 48 tíma

Kólumbíumaðurinn Carlos Bacca fagnar marki með landsliðinu.
Kólumbíumaðurinn Carlos Bacca fagnar marki með landsliðinu. AFP

Sonur stjórnarformanns West Ham hefur afhjúpað að framherjinn Carlos Bacca gæti verið á leiðinni til félagins frá AC Milan. Að hans sögn mun Bacca gefa svar eftir 48 klukkustundir. 

Á twitter-síðu sinni segir Jack Sullivan:

„Við höfum komist að samkomulagi við AC Milan um kaupverð á Bacca og hann hefur sagt að hann muni veita okkur svar eftir 48 klukkustundir.“

Hinn 29 ára gamli Carlos Bacca er kólumbískur og var keyptur til AC Milan fyrir síðasta tímabil fyrir um 30 milljónir evra þar sem hann skoraði 18 mörk í 38 deildarleikjum.  

West Ham er í leit að framherja og hefur verið orðað við fjölda leikmanna í sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert