Liverpool að fá Wijnaldum?

Georginio Wijnaldum, til vinstri, í landsleik með Hollendingum í vor.
Georginio Wijnaldum, til vinstri, í landsleik með Hollendingum í vor. AFP

Liverpool hefur náð samkomulagi við Newcastle um kaup á hollenska landsliðsmanninum Georginio Wijnaldum, samkvæmt frétt Sky Sports í morgun, og greiðir fyrir hann 25 milljónir punda. Hann er á leið í læknisskoðun hjá Liverpool.

Wijnaldum er 25 ára sóknartengiliður sem skoraði 11 mörk í 38 leikjum fyrir Newcastle í úrvalsdeildinni í fyrra. Hann hefur leikið 30 landsleiki fyrir Holland og skorað í þeim sex mörk.

Áður en hann kom til Newcastle fyrir síðasta tímabil skoraði Wijnaldum 64 mörk í 220 leikjum fyrir PSV Eindhoven og Feyenoord í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert