Mata er í plönum Mourinho

Juan Mata, leikmaður Manchester United, með boltann í leik liðsins …
Juan Mata, leikmaður Manchester United, með boltann í leik liðsins gegn Tottenham á síðasta tímabili. AFP

Juan Mata mun hafa hlutverki að gegna með Manchester United á næstu leiktíð ef marka má orð José Mourinho sem Sky Sports vitnar í. 

„Hann veit að hann er góður leikmaður og að hann eigi pláss í liðinu,“ sagði Mourinho.

„Fram að 31. ágúst er markaðurinn opinn fyrir alla leikmenn okkar sem eru óánægðir en ég held að Mata sé ánægður hérna og ég býst ekki við því að hann óski eftir að fara. Ég býst við að hann berjist fyrir sæti í liðinu.“

Vangaveltur hafa verið um framtíð Juan Mata undir stjórn Mourinho í ljósi þess að Mourinho seldi Mata til Manchester United meðan hann var við stjórnvölinn hjá Chelsea. 

„Ég held að það sé ákveðinn misskilningur um það sem átti sér stað hjá Chelsea vegna þess að ég bað Mata aldrei um að fara og þrýsti ekki á félagið að selja hann.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert