Song er farinn til Rússlands

Alex Song.
Alex Song. AFP

Kamerúnski knattspyrnumaðurinn Alex Song sem lék með West Ham síðasta vetur er farinn til Rubin Kazan í Rússlandi en Barcelona hefur selt hann þangað.

Song hefur verið meira og minna hjá West Ham undanfarin tvö tímabil og spilað 40 leiki í úrvalsdeildinni með Lundúnaliðinu en hann hefur annars verið í röðum Barcelona frá 2012. Song, sem er 28 ára gamall, lék áður með Arsenal í sex ár og hann hefur spilað 49 landsleiki fyrir Kamerún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert